Sigrún er fædd 22. júlí 1969 í Kópavogi en hefur búið í Hveragerði frá árinu 2005. Sigrún er hárgreiðslukona og leikskólakennari að mennt. Hún hefur stundað nám við Myndlistarskóla Kópavogs frá árinu 2000 bæði í vatnslitun og olíumálun. Einnig stundaði hún nám í Masterclass – tilraunastofu vorið 2007 hjá Bjarna Sigurbjörnssyni myndlistarmanni.
Sigrún hefur haldið nokkrar myndlistasýningar og eina samsýningu sem var í Heilsuverndarhúsinu á Barónstíg á menningarnótt 18. ágúst ´07 með 16 öðrum nemendum frá Masterclass námskeiðinu.
S: 660 1656, 5544 996 sigrunsj@internet.is
Hér eru nokkur verk eftir Sigrúnu
|