Ragnhildur Jóhanna Barðadottir
Ragnhildur Jóhanna Barðadóttir fæddist á Ísafirði 1965.
Hún er með samvinnuskólapróf frá Bifröst ´86, Þroskaþjálfaskóli ´96 og tölvuviðgerðir og kerfisstjóri NTV. Einnig hefur hún sótt ýmiskonar námskeið, hún er að mestu leiti sjálfmenntuð í skartgripagerð.
Ragnhildur hefur unnið við margskonar störf þ.á.m. leikskóla, svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, SÍS skrifstofa, kennsla, tölvuviðgerðir, verslun og fiski.
Hún hefur búið víðsvegar um heiminn þar má nefna: Ísafirði, Reykjavík, Colorado, Mexíkó, Hellissandi og síðan fluttist hún til Hveragerðis árið 2005 og hefur búið þar síðan.
Áhugi Ragnhildar á skartgriðagerð veknaði árið 2007 þegar hún dvaldi í Mexíkó, síðan þá hefur hún verið iðin við fagið og stundaði m.a. námskeið í silfursmíði árið 2009 í Reykjavík.
Ragnhildur vinnur með silfur, steina, perlur, gler, roð og ull.
Ragnhildur hefur verið virk í Handverk og hugvit undir Hamri Hveragerði síðan árið 2008.
Skoða verk |