Sverrir Gunnarsson er fæddur í Reykjavík árið 1928. Hann fór fimmára gamall í sveitina en var í Austurbæjarskólanum í Reykjavík um vetur. Sverrir fór í Bændaskólann á Hvanneyri árið 1946 -1948. Sverrir var við landbúnaðarstörf í yfir 50 ár þar sem hann vann bæði við garðyrkju og búnaðarstörf. Hann er fyrrverandi bóndi á Hrosshaga í Biskupstungum. Hann fluttist til Hveragerðis árið 2002 og gerðist fljótlega virkur í handverkshópnum. Sverrir er sjálfmenntaður í handverk en fékk í byrjun tilsögn hjá Ingólfi á Iðu. Sverrir fæst aðalega við útskurði í tré, smíðar m.a. leikföng og áhöld.
Sími: 486 8883 Gsm: 987 9256 Tölvupóstfang: sgofg@simnet.is
Skoða verk
|