Ãslenska English

Ólöf Guðrún Björnsdóttir er fædd árið 1960 á Akranesi. Hún fluttist til Hveragerðis árið 1996. Ólöf er kennari að mennt. Handverk Ólafar eru aðallega skartgripir sem unnir eru úr fjörugleri, bræðslugleri, kristal og postulíni. Hún er að mestu leiti sjálfmenntuð í skartgripasmíði en hefur þó sótt nokkur námskeið varðandi smíði þeirra.

Skartgripir eru búnir til úr sjóreknu fjörugleri, sem tínt er í fjöruborðinu á ýmsum stöðum á Íslandi. Einnig er notað afskurðargler í skartgripina. Allt glerið er síðan endurunnið með því að setja það í steinslípurnarvél. Glerið er síðan sett í tromlu í steinslípunarvélina sem snýst í hringi dag og nótt ásamt vatni og mismundandi grófum steinslípurnarmassa sem ræðst af því í hvernig ástandi glerið er. Eftir ca 6 vikur er endurvinnslunni lokið og  það tilbúið. Glerinu er þá raðaða eftir stærð, þykkt og litum eftir því hvaða skartgripi er verið að búa til. Svonefnd Tiffany aðferð er einnig notuð við gerð sumra skartgripanna.

 

 

 Sími: 483 4311 Gsm: 868 6420  tölvupóstfang:  olofgudrun@simnet.is

 

Skoða verk
• handverk[hjá]handverkgalleri.is •
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is