Hörður Friðþjófsson er fæddur í Reykjavík 1948, en er ættaður frá Ísafirði og Bíldudal. Hann flutti til Hveragerðis árið 1972, þá hálfnaður í húsasmíðanámi og hóf störf á Heilsuhælinu (NLFÍ) við smíðar og lauk þar jafnframt náminu 1974.
Hörður stundaði tónlistarnám frá miðjum unglingsaldri í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og hefur starfað sem gítarkennari við Tónlistarskóla Árnesinga frá árinu 1978. Hann hefur lagt stund á myndlist frá árinu 1992 og sótt nokkur námskeið þar að lútandi hjá Myndlistarfélagi Árnessýslu.
Árið 2006 vaknaði áhugi á gítarsmíði og eftir leit á Netinu fann Hörður fyrirtæki í Ameríku sem sérhæfir sig í útvegun efnis til gítarsmíða, pantaði efni í einn gítar, smíðaði hann með glans og lét gott heita. Eða þannig átti það að vera. En, það var fljótlega keypt efni í annan, og svo annan og bakterían var komin til að vera.
Sími: 483 4586 Gsm: 869 7614 tölvupóstfang: hofri@centrum.is
Skoða verk
|